Andleg sjálfshjálparhelgi 25-27 apríl 2025
- Dagbjört Þórðardóttir
- Apr 29, 2025
- 1 min read
Ég hélt mína fyrstu Andlegu sjálfshjálpar helgi um helgina og svíf ennþá um á bleiku þakklætisskýi! <3
Ég leigði fallegasta og yndislegasta hús landsins, Mel í Þykkvabæ, af @gudjonsdottirhildur og Adda, sem í sjálfu sér var einn stærsti hluti þess hve vel gekk um helgina! Þetta hús er ekkert eðlilega kózý og andinn þarna svo áþreyfanlega góður og slakandi Takk enn og aftur fyrir okkur elsku Hildur og Addi <3
Ekki versnaði það þegar fjórar frábærar konur mættu, tilbúnar í slökun og kósýheit Félagsskapurinn var svo skemmtilegur og gefandi og orkan sem myndaðist var stórkostleg!! Takk enn og aftur fyrir traustið, komuna, hjálpina og skemmtunina Þið eruð BESTAR :)<3
Luna sæta fékk að koma með, enda í strangri andlegri og sálarhjálpandi þjálfun! Hún stóð sig eins og hetja, jók almenna gleði okkar og hlýddi með að sofa á meðan hugleiðslum og öðru slakandi stóð #proudmama
Ég seldi nokkra draumafangara en ég hef fengið útrás fyrir sköpunina undanfarið með því að hanna þá Það bætist eflaust flipi á heimasíðuna fljótlega fyrir sölu á þeim ásamt fleiru spennó :)
Ég er svo endalaust þakklát, endurnærð og stútfull af jákvæðri og gefandi heilunarorku og hlakka strax til næstu Andlegra sjálfshjálparhelga :D
Það er við hæfi að enda á Reiki möntrunni:
Bara í dag er ég laus við reiði
Bara í dag er ég laus við áhyggjur
Bara í dag er ég þakklát
Bara í dag er ég heiðarleg í verkum mínum
Bara í dag ber ég virðingu fyrir öllum lifandi verum
Takk fyrir allt <3 <3 <3













Comments