top of page

Gefðu þér klukkustund í miðri viku til að staldra við, sleppa spennu og endurhlaða orkuna. 

 

Á miðvikudagskvöldum býð ég upp á 60 mínútna djúpa slökun þar sem við sameinum leidda djúpslökun og tónheilun.

 

Um stundina

Við hefjum kvöldið á leiddri djúpslökun sem róar hugann og losar um spennu í líkamanum.
Þegar líkaminn og hugurinn hafa fengið að mýkjast tekur tónheilunin við. Hljóð og titringur frá gongi, trommum og Koshi chimes umvefur þig og stuðlar að jafnvægi, innri kyrrð og endurnýjun.

Þetta er þinn heilagi tími í miðri viku, stund þar sem þú færð að sleppa tökum, hlaða þig ró og styrk fyrir næstu daga.

 

  • Staðsetning: Urðartjörn 4, Selfossi – lítið og kósý rými

  • Tími: Miðvikudagar kl. 17:30–18:30

  • Verð: 1.500 kr. á mann

  • Skráning: Með skilaboðum  á Facebook/Instagram eða með tölvupósti á andlegvegferd@gmail.com. Pláss eru takmörkuð.

 

Ljúf stund fyrir líkama, huga og sál, rétt á meðan dagurinn sefur og kvöldið tekur við. 

bottom of page