PERSÓNUVERNDARSTEFNA
ALMENNT UM PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Persónuupplýsingar eru allar þær upplýsingar sem auðkenna þig. Dæmi um persónuupplýsingar eru nafn, netfang, símanúmer og upplýsingar um hvernig þú notar heimasíðu okkar.
UPPLÝSINGASÖFNUN
Til þess að byggja upp og bæta þjónustu okkar og til þess að markaðssetja okkur rétt á veraldarvefnum er nauðsynlegt að safna ýmsum tæknilegum upplýsingum. Aðal tilgangur með söfnun persónuupplýsinga er fyrst og fremst til að veita sem skilvirkasta meðferð.
Við söfnum, og gætum geymt, uppgefnar upplýsingar á heimasíðunni www.andlegvegferd.is. (IP-tölu, nafn, netfang og símanúmer). Einnig greinum við upplýsingar um hvers konar raftæki var notað, hvaða vafri var notaður, hvaða flipa var smellt á, hver viðbragðstími síðanna var og fleira. Við gætum sameinað ópersónuleg markaðsgögn við gögn þriðja aðila (Google, Facebook og fleiri) þannig að bæði fyrirtæki getið skilið virknina sem best.
Andleg vegferð safnar ekki viðkvæmum persónuupplýsingum um uppruna, trúarbrögð, kynhneigð, kynþátt, stjórnmálaskoðanir, heilsufar*, erfðafræðilegar- eða lífkennaupplýsingar. Það sama á við um upplýsingar um sakfellingu í refsimálum eða refsiverð brot.
*Heilsufarsupplýsingum sem gætu haft áhrif á meðferðir Andlegrar vegferðar þarf meðferðarþegi ávallt að taka fram áður en að meðferð hefst. Ekki telst ráðlagt að hefja meðferð á fólki sem glíma við geðhvarfasýki, geðrof, alvarlegt þunglyndi eða sem þjáist af öðrum alvarlegum og ómeðhöndluðum andlegum kvillum. Þessum upplýsingum er eytt um leið og meðferð lýkur.

